Hertz bílasala
Fjármögnun

Bílalán án fyrirhafnar

Þú finnur bílinn og sölumaðurinn okkar sækir um lánið fyrir þig, hér á staðnum. Þú skrifar undir með rafrænum skilríkjum og keyrir af stað.

Sölumaður Hertz bílasölu fer yfir fjármögnun með viðskiptavini
80–90%af kaupverði hægt að fá að láni
7–8 árhámarkslánstími
0 kr.uppgreiðslugjald. Þú mátt greiða lánið upp hvenær sem er
Græn lánlægri vextir og lántökugjöld á rafbílum og tengiltvinnbílum

Kjör eru mismunandi eftir lánveitendum og fara eftir lánshæfi kaupanda og aldri bílsins.

Lánveitendur sem við vinnum með

Sölumenn okkar ganga frá umsókninni en þú getur líka kynnt þér gjaldskrár og kjör beint hjá lánveitendunum.

Ergo

Allt að 85% · allt að 8 ár
Hagasmára 3, 201 Kópavogur
Sími 440 4400
ergo@ergo.is
ergo.is ↗

Lykill

Allt að 90% · allt að 7 ár
Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
Sími 540 1700
lykill@lykill.is
lykill.is ↗

Landsbankinn

Allt að 80% · allt að 8 ár
Borgartúni 33, 105 Reykjavík
Sími 410 4810
bilar@landsbankinn.is
landsbankinn.is ↗

Arion banki

Allt að 80% · allt að 7 ár
Borgartúni 18, 105 Reykjavík
Sími 444 8800
bilar@arionbanki.is
arionbanki.is ↗

Alísa

Allt að 7 ár
Sundagörðum 2, 104 Reykjavík
Sími 556 7000
alisa@alisa.is
alisa.is ↗

Pei

Allt að 3 m.kr. · allt að 5 ár
Katrínartúni 4, 105 Reykjavík
Sími 527 5400
pei@pei.is
pei.is ↗

Netgíró

Lán
Sótt er um í Netgíró appinu eða á mínum síðum á netgiro.is
netgiro.is ↗

Svona gengur þetta fyrir sig

Þú þarft ekki að fara í bankann. Við sjáum um samskiptin við lánveitandann og þú fylgist með.

  1. Þú velur bílinn

    Skoðaðu úrvalið á vefnum eða komdu á Selhellu 5. Ef þú átt bíl fyrir getum við metið hann upp í kaupin.

    Þú
  2. Við sækjum um lánið

    Sölumaðurinn sendir umsóknina rafrænt til lánveitanda. Þú staðfestir með rafrænum skilríkjum svo hægt sé að gera lánshæfismat.

    Hertz
  3. Lánið er samþykkt

    Lánveitandinn fer yfir umsóknina og útbýr samning. Ef lánið er hærra en um 3,15 m.kr. þarf líka rafrænt greiðslumat.

    Lánveitandi
  4. Þú skrifar undir og keyrir af stað

    Þú undirritar samninginn rafrænt, gengur frá kaskó- og ábyrgðartryggingu og færð lyklana.

    Þú + Hertz

Bílalán á mannamáli

Þetta eru orðin sem koma fyrir í lánasamningnum og hvað þau þýða fyrir þig.

Útborgun

Sá hluti kaupverðsins sem þú greiðir sjálf/ur, með millifærslu eða uppítökubíl. Algengt er að útborgun sé að lágmarki 10–20%.

Lánshlutfall t.d. 80%

Hve stór hluti kaupverðsins er tekinn að láni. 4.000.000 kr. bíll með 80% láni þýðir 3.200.000 kr. lán og 800.000 kr. útborgun.

Lánstími

Hve lengi þú greiðir af láninu. Lengri lánstími gefur lægri mánaðargreiðslu en þú greiðir meira í vexti samtals.

Breytilegir vextir

Flest bílalán eru óverðtryggð með breytilegum vöxtum. Vextirnir geta hækkað eða lækkað á lánstímanum, t.d. ef stýrivextir breytast.

Lántökugjald

Gjald sem lánveitandinn tekur einu sinni þegar lánið er stofnað. Við bætist þinglýsingargjald og lítið greiðslugjald með hverri afborgun.

Greiðslumat

Rafrænt mat á því hvort þú ráðir við afborganirnar. Það er skylt samkvæmt lögum ef lánið fer yfir um 3,15 m.kr. (um 6,3 m.kr. hjá hjónum).

Veð í bílnum

Lánveitandinn er með veð í bílnum þar til lánið er greitt upp. Bíllinn er skráður á þig en þarf að vera í kaskótryggingu allan lánstímann.

Aldur bíls + lánstími

Lánveitendur setja hámark á samanlagðan aldur bíls og lánstíma, oft 12 ár. Fimm ára bíl er því oft hægt að fjármagna til allt að sjö ára.

Græn lán

Rafbílar og sumir tengiltvinnbílar fá lægri vexti, oft 0,6–1,0 prósentustigi lægri, og helmingsafslátt af lántökugjaldi.

Gamli bíllinn sem útborgun

Áttu bíl fyrir? Við metum hann og verðmætið gengur upp í kaupverð nýja bílsins. Það lækkar lánið eða getur dugað alveg fyrir útborguninni.

Verð bíls−Uppítökubíll−Útborgun=Lán

Ef áhvílandi lán er á gamla bílnum er farið yfir það með sölumanni þegar bíllinn er metinn.

Það sem þú þarft

  • Rafræn skilríki í símanum, til að sækja um og skrifa undir
  • Útborgun með millifærslu eða uppítökubíl
  • Kaskó- og ábyrgðartryggingu á bílinn. Þú velur tryggingafélag
  • Nokkrar mínútur í greiðslumat ef lánið er hærra en um 3,15 m.kr.

Spurt og svarað

Má ég greiða lánið upp fyrr?

Já. Helstu lánveitendur taka ekki uppgreiðslugjald af bílalánum með breytilegum vöxtum. Þú getur greitt aukalega inn á lánið eða greitt það upp að fullu hvenær sem er.

Hvað tekur langan tíma að fá lánið samþykkt?

Umsóknin er rafræn og í mörgum tilfellum fæst svar samdægurs. Ef þörf er á greiðslumati bætast við nokkrar mínútur sem þú klárar sjálf/ur með rafrænum skilríkjum.

Hvað kostar að taka bílalán?

Auk vaxta greiðir þú lántökugjald þegar lánið er stofnað, þinglýsingargjald og lítið greiðslugjald með hverri afborgun. Upphæðirnar eru mismunandi eftir lánveitendum og koma fram í gjaldskrá hvers og eins. Sölumaðurinn fer yfir heildarkostnaðinn með þér áður en þú skrifar undir.

Get ég fengið lán fyrir eldri bíl?

Yfirleitt já, en lánstíminn styttist eftir því sem bíllinn er eldri. Margir lánveitendur miða við að aldur bílsins og lánstíminn séu samanlagt ekki meira en 12 ár.

Hvað ef ég á bíl sem er enn með láni?

Það er algengt. Við metum bílinn og förum yfir stöðuna á láninu með þér. Ef bíllinn er meira virði en lánið gengur mismunurinn upp í útborgun á nýja bílnum.

Skiptir máli hvort bíllinn er rafbíll?

Já. Flestir lánveitendur bjóða græn lán fyrir rafbíla og sparneytna tengiltvinnbíla, með lægri vöxtum og afslætti af lántökugjaldi.

Viltu fara yfir dæmið með sölumanni?

Hringdu eða kíktu við á Selhellu 5. Við setjum upp fjármögnunina með þér og finnum afborgun sem hentar.

Sími522 4466
HeimilisfangSelhellu 5, 221 Hafnarfirði
OpiðMán–fim 9–17 · fös 9–16